
Endurvinnsla
Allan efnivið tækisins má endurnýta sem efni og orku. Upplýsingar um hvernig
endurvinna skal gamlar Nokia-vörur er að finna á www.nokia.com/werecycle, eða um
notkun farsíma, www.nokia.mobi/werecycle.
Endurvinna skal pakkningar og notandahandbækur á næstu endurvinnslustöð.
Merkið sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu og er á vörunni, rafhlöðunni, bæklingnum eða
umbúðunum táknar að fara verður með allan rafbúnað og rafeindabúnað, rafhlöður og
rafgeyma á sérstaka staði til förgunar að líftíma vörunnar liðnum. Þessi krafa á við innan
Evrópusambandsins. Hendið þessum vörum ekki með heimilisúrgangi. Frekari
upplýsingar um umhverfislega eiginleika tækisins er að finna á www.nokia.com/
ecodeclaration.